Egilshöllin í Grafarvogi er stærsta afþreyingar- og íþróttamiðstöð á Íslandi
Húsið er um 24.000 fm² sem skiptist í 10.800 fem. knattspyrnusal, 400 fm² skólaíþróttasal, 4000 fm² skautahöll, 800 fm² skotæfingasvæði og 8.000 fm² í í ýmsa smærri sali skrifstofu, þjónustu, og margt fleira
Knattspyrnuvöllur
Knattspyrnuvöllurinn er 120x90 m eða 10.800 fm². Lofthæð er 20m yfir miðlínu. Á vellinum er gervigras 105 x 68 fm² í húsinu er aðstaða fyrir um 2000 áhorfendur í sæti og um 1000 í stæði. Knattspyrnusalurinn er nýttur fyrir knattspyrnuæfinga yngri sem meistaraflokka Reykjavíkur félaganna og keppni fyrir yngri flokka og til landsleikja
Skautasvell
Skautasvellið er 60X30 m eða 1800 fm² og er það stærð fyrir alþjóðlegar keppnir. Á efstu hæð þverbyggingarinnar. Þar er Skautafélagið Björninn með sinn heimavöll og alla starfsemi sína bæði í íshokkí og listdans á skautum. Áhorfendaaðstaða er fyrir 250 manns í sæti. Almenningur fær einnig sín tækifæri til skautaiðkunar og sama má segja um nemendur grunn- og framhaldsskóla borgarinnar sem þegar hafa sótt skautasvellið mjög mikið. Einnig hefur skautasvellið verið æfingahöll fyrir íshokkílið beggja vegna Atlandshafsins á undirbúningstíma þeirra sem er utan háannatima á svellinu hér heima.
Æfinga- og keppnissvæði fyrir skotíþróttir
Á nestu hæðinni er innanhússaðstaða fyrir Skotfélag Reykjavíkur. Skotsvæðið er það fullkomnasta á landinu innandyra.
Smærri íþróttasalir
Nokkrir smærri íþróttasalir eru á neðstu hæðinni sem eru fyrir karate, taikvondo, dans, ballett, leikfimi og þolfimi
Heilsuakademían
Heilsuakademían býður upp á landins mesta úrval námskeiða og frábæran tækjasal í Egilshöll.
Í Egilshöll er einnig snyrtistúdíó, nudd, gufa og heitur pottur. Barnagæsla er í boði fyrir viðskiptavini Heilsuakademíunnar alla virka daga kl. 9:00-11:00 og 17:00-19:30 og laugardaga kl. 9:00-11:00.
Hægt er að leigja íþróttasali í gegnum Heilusakademíuna en þeir salir sem um ræðir eru: salir Heilsuakademíunnar í Egilshöll þ.á.m. sérútbúinn herþjálfunarvöllur