Heilsuakademían er líkamsræktarstöð í Egilshöll sem býður upp á tækjasal og landsins mesta úrval námskeiða. Einnig er í boði heitur pottur, gufa, barnagæsla, nudd og snyrtistofa.

Heilsuakademían býður upp á fjölbreytilega, heilsusamlega afþreyingu í formi ýmis konar námskeiða fyrir alla þá sem vilja stunda holla og skemmtilega hreyfingu án keppni. Heilsuakademían býður einnig upp á hópefli fyrir fyrirtæki, skemmtanir fyrir vinahópa, gæsanir, steggjanir, barnaafmæli, o.fl. 

Heilsuakademían leggur megin áherslu á að veita persónlega þjónustu til að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna. Megin starfsemin er í Egilshöllinni þar sem Heilsuakademían býður upp á frábæran tækjasal auk þess að boðið er upp á námskeið í íþróttahúsi Lækjarskóla í Hafnarfirði og sundskóla 2-5 ára í íþróttamiðstöðinni Lágafelli í Mosfellsbæ.