NÝTT: Höfum til leigu fótboltavelli fyrir hópa, fyrirtæki eða hvern sem er. BÓKIÐ HÉR
Hægt er að fá nánari upplýsingar í símum 664-9605 og 664-9608.
Vellirnir eru alls þrír og og eru við norðurhlið Egilshallar. Verð fyrir hverja klukkustund er kr. 3.000 á vikum dögum og kr. 3.500 um helgar. Lið verða að koma með eigin bolta. Starfsmenn fótboltahúss og Sportbitans sjá um útleigu og innheimtu.
Knattspyrnuvöllurinn innanhúss er 120x90 m eða 10.800 fm². Lofthæð er 20m yfir miðlínu. Á vellinum er gervigras 105 x 68 fm² í húsinu er aðstaða fyrir um 2000 áhorfendur í sæti og um 1000 í stæði. Í kringum völlin er tartan hlaupabraut sem þjónar frjálsíþróttafólki sem og öðrum til upphitunar. Fyrir norðan húsið eru upphitaðir og flóðlýstir útivellir. Einn stór og þrír "five-a-side" vellir.
Knattspyrnusalurinn er aðallega nýttur fyrir knattspyrnuæfinga Fjölnis en önnur félög eiga einnig æfingatíma í húsinu. Egilshöllin er einnig nýtt til keppni meistaraflokka Reykjavíkur félaganna og keppni fyrir yngri flokka og til landsleikja.


